Thursday, 17 April 2014

NEGLUR


Ég elska minimalístískt naglalakk! Ekki bara af því mér finnst það fallegt heldur líka af því ég get verið ógeðslega löt við að viðhalda naglalakkinu mínu. Mér finnst svo ljótt þegar naglalakkið er farið að flagna. Þessvegna hefur þessi naglaskreyting verið mikið notuð og í miklu uppáhaldi. 
Ég var að renna í gegnum uppáhalds bloggið mitt um daginn og rakst á þessar neglur og ákvað að prufa sjálf. Mér finnst það nú mjög fallegt en það fékk ekki að halda sér lengi. Ég hreinsaði heilu svörtu neglurnar þegar þær fóru að flagna og efri punktinn á hinum nöglunum. Ég hélt mig svo við neðri punktinn og bætti honum líka við á hinar neglurnar. Mér finnst það koma mjög vel út en er því miður ekki með mynd fyrir ykkur. Ég gerði punktinn með því að dýfa tannstöngli í naglalakk en ef þið eigið naglapenna er mjög sniðugt að nota bara svoleiðis. 


Tuesday, 15 April 2014

INNBLÁSTUR M.I.A.

M.I.A. eða Mathangi Arulpragasam kölluð Maya. Ég dáist af þessari konu ó hvað hún er svöl. Fötin hennar og þá séstaklega skartgiripirnir og aukahlutirnir sem hún klæðist veita mér mikinn innblástur. Hún er alger drottning og svo gerir hún líka mjög töff tónlist!














Ég er alveg sjúklega ástfanginum af þessum kjól hérna á neðstu tveimur myndunum. Kjólinn saumaði Alexander Wang fyrir Maya en það var aðeins gert eitt eintak og var hann svo seinna seldur á uppboði. Væri ekkert á móti því að eig´ann í fataskápnum. 



Monday, 14 April 2014

SÆTINDI: DULCE DE LECHE SMÁKÖKUR

Við systur bökuðum þessar æðislegu smákökur í dag. Uppskriftin kemur frá sænska matarbloggaranum Linda Lomelino, en hún gerir mikið af mjög girnilegum uppskriftum eins og til dæmis þessa hér


Þetta dulce de leche er semsagt sweetened condensed milk sem er oft erfitt að finna en við keyptum okkar dós í tælensku búðinni á Laugaveginum á móti Hlemmi. Það eru til ýmsar aðferðir við að gera þetta margumtalaða dulce de leche úr mjólkinni en við settum það í pott og höfðum á lágum hita og hrærðum í um klst eða svo. Mæli með að þið googlið og finnið leið sem að ykkur hentar. 




Þetta eru með bestu smákökum sem ég hef bakað, mæli með að þið prófið sjálf!

Sunday, 13 April 2014

Wednesday, 9 April 2014

Smoothie dagsins


Inniheldur: banana, frosin jarðaber, frosið mangó, frosin bláber, möndlumjólk, epla&engifersafa, sítrónusafa og kasjúhnetur. 


Tuesday, 8 April 2014

blómlegt





Afsakið mig, er greinilega farin að hlakka mikið til sumars!

myndir: tumblr