Showing posts with label photography. Show all posts
Showing posts with label photography. Show all posts

Friday, 27 June 2014

Sumarplanið

Ég gerði lista með 25 hlutum sem mig langar að gera í sumar. Ég ætla að taka mynd af því sem ég geri og setja það allt inní litla bók. Ég keypti mér geðveika Fujifilm instax myndavél um daginn sem er svona eins og poloroid sem þýðir að myndavélin framkallar strax myndirnar sem hún tekur. Þannig að ég ætla að setja eina mynd á hverja síðu og skrifa smá lýsingu fyrir ofan. 
Ég er ekki byrjuð að setja inn í bókina en er byrjuð að taka myndir. Þetta er ótrúlega skemmtilegt og sniðugt ef þú vilt eiga eftirminnilegt sumar. Hlutirnir á listanum þurfa samt ekki að vera neitt flóknir bara eitthvað sem þig langar að gera. Í lok sumars ætla ég að sýna ykkur eitthvað úr minni bók!




Við Magna erum að fara til vestfjarða í óbyggðir þannig að við verðum netlausar og því blogglausar í 4 daga


Thursday, 19 June 2014

Lupita Nyong´o

Lupita Nyong´o for Vogue by Mikael Jansson, July 2014




Æðislegar myndir af fallegri stúlku. Hægt að skoða fleiri myndir hér.


source: Les Beehive


Tuesday, 25 March 2014

KISUPERRI

Eins og flestir mínir vinir vita eru kettir mitt helsta áhugamál. Ég kíki vandræðalega oft á úrvalið af kettlingum inn á bland.is og er örugglega í öllum kattargrúbbunum á facebook.




Þetta er instagrammið hennar Hnetu


Þetta er batti minn










Mermaid

Ljósmyndasería sem að Tim Walker tók af Kristen McMenamy fyrir tímaritið W. 
Mér þykir þessi sería svo ofboðslega falleg og veitir mér mikiknn innblástur, módelið, litirnir, áferðirnar og fötin þykir mér allt einstaklega fallegt. Ég get ómögulega valið einhverjar myndir framyfir aðrar í þessari seríu svo ég birti hér allar myndirnar úr ljósmyndaseríunni. 
















Hafmeyjur eru eitthvað svo heillandi goðsögn, allavega finnst mér það. Þegar ég var lítil og var spurð að því hvað ég vildi verða þegar ég yrði stór sagði ég hafmeyja! Mér fannst það algerlega raunhæft markmið á þeim tíma. 

myndir: Tim Walker hér