Showing posts with label sætindi. Show all posts
Showing posts with label sætindi. Show all posts

Sunday, 18 May 2014

sætindi

Við systur eigum það til að fá alveg ótrúlega sykurþörf. Við áttum um daginn að ákveða eftirmat sem við ætluðum að hafa í matarboði daginn eftir. Við vorum búnar að ákveða að hafa ostaköku og sátum slefandi yfir uppskriftum. Þegar við vorum búnar að skoða svona margar girnilegar uppskriftir af ostakökum var löngunin orðin of mikil! Við urðum að fá ostaköku og það strax!
Það tók okkur ekki langann tíma að vippa þessu upp. Við ætluðum að gera oreo ostaköku, en við áttum bara 2 oreókex.. Þá voru góð ráð dýr. Við gerðum hálfa uppskrift af þessari hér, svo möluðum við ballerínukex í botninn, ostakökusullið ofaná og að lokum muldum við oreókexin tvö ofaná.



Þetta var syndsamlega gott skal ég segja ykkur, og svalaði sykurþörfinni í þetta skiptið. 


Sunday, 27 April 2014

Olaf kaka


Ég bakaði þessa fínu köku á föstudaginn fyrir vinkonu mína sem átti afmæli. Þar sem við erum miklir Olaf unnendur. Fyrir þá sem ekki vita er Olaf persóna úr myndinni Frozen .Ég fór á Pinterest og fékk þar margar góðar hugmyndir. Ég gerði skapalón og klippti það út og lagði það ofan á skúffukökuna og skar eftir því.
Kremið er vanillusmjörkrem og svo eru tennurnar og augun sykurpúðar.

Olaf 

Tuesday, 1 April 2014

SÆTINDI: PEKANPÆ


Ég bakaði þetta ljúffenga pæ um helgina og það vakti mikla lukku. Mæli með að þið prufið :)

Í botninn fer:
300 gr hveiti
150 gr púðursykur
150 gr mjúkt smjör
200 gr pekanhnetur

Karamellan:
175 gr smjör
80 gr púðursykur

Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C
Hnoðið deigið saman og setjið í botninn á eldföstu móti.
Dreifið síðan pekan hnetunum yfir deigið og inn í ofn í ca. 20 mínútur.
Svo sýðuru smjörið og púðursykurinn saman þangað til sykurinn er bráðnaður, og hellið því ofan á pekanhneturnar.

Njótið!


Friday, 28 March 2014

SÆTINDI: Oreo kaka

Við vorum ekkert að grínast með þessa sætindaþörf sko! Stundum er metnaðurinn meiri og þá er skellt í svona alvöru köku sem þarfnast meiri fyrirhafnar eins og t.d. þessi eða ískökurnar sem hún Katla gerði um daginn.


Uppskriftin af oreokökunni er upprunalega héðan.

Það sem þarf:
1 1/2 bolli sykur
2 eggjarauður
125 g smjör
2 dl karamellujógúrt
1 1/2 tsk lyftiduft
1/2 tsk vanilludropar
1 tsk vanillusykur
3 bollar hveiti
u.þ.b. 12 muldar oreo kexkökur

Aðferð:
Hitið ofninn í 160°C. 
Byrjið á því að hræra vel saman eggjarauðum og sykri. 
Hrærið svo við smjörið, jógúrtina, lyftiduftið, vanilludropa og vanillusykur.
Hrærið hveitið svo saman við með sleif og svo er oreo kexinu bætt útí að lokum.
Bakið í miðjum ofni í um 30 mín eða þar til kakan er orðin gullinbrún. (Mér finnst gott að athuga hvort hún sé tilbúin með því að stinga prjóni í kökuna miðja og ef það kemur ekkert deig með honum er kakan tilbúin.)

Smjörkrem:
Þessi uppskrift er blanda af nokkrum uppskriftum sem hafa verið í uppáhaldi hjá okkur. Í hana fer:
150 g smjör
1/2 tsk vanilludropar
1 1/2 tsk vanillusykur
2 msk sýróp
2 msk kakó
1 1/2 - 2 msk kaffi
500 g flórsykur

Byrjið á að þeyta saman allt nema kaffið og flórsykurinn. Þeytið svo flórsykurinn við í litlum skömmtum og setjið kaffið þegar kremið virðist of þykkt.
Smyrjið svo kreminu á kökuna og myljið oreo kexi yfir.
Njótið með bestu lyst!



Tuesday, 25 March 2014

SÆTINDI: einfaldar brownies

Það er ekki sjaldan sem að sykurþörfin gerir vart við sig hér. Þá á ég til að skella í þessar ofureinföldu brownies. Uppskriftin er upprunalega héðan en hún er með örlitlum breytingum frá mér. Það sem ég elska við þessa uppskrift er að hún er alger grunnuppskrift og rosa góð ein og sér, en svo getur maður bætt sjálfur í hverju sem maður vill hafa með við séstök tilefni eins og t.d. hnetur, súkkulaði eða oreo kex.

Það sem þarf:
60 g smjör
5 msk kakó
2 egg
2 dl sykur
1/2 tsk lyftiduft
1/2 tsk vanilludropar
1 tsk vanilluskykur
1 1/4 dl hveiti

Aðferð: 
Hitið ofninn í 175°C
Bræðið saman smjör og kakó - í potti eða örbylgjuofni. 
Setjið egg og sykur saman í skál og þeytið létt saman með písk þar til blandan er orðin vel samanlöguð. 
Hellið kakósmjörinu saman við ásamt lyftidufti og vanillusykri og blandið vel saman. 
Bætið hveitinu við og hrærið saman með sleif. 
Smyrjið eldfast mót og hellið deiginu í formið og sléttið yfirborðið. 
Bakið í miðjum ofni í um 20 mín. 



Í þetta skiptið var engu bætt í deigið en ís borðaður með : )

Monday, 24 March 2014

SÆTINDI

Bakaði þessar í gær og útkoman kom mjög vel út.
Uppskriftin er úr Bollakökur Rikku.