Showing posts with label life. Show all posts
Showing posts with label life. Show all posts

Monday, 5 May 2014

Fimm dagsins


Ég keypti mér þennan fína Zöru leddara fyrir sumarið um daginn. Leyst svo vel á hann því hann er í síðari kantinum og með hæfilega stórum vösum.



Þar sem ég er með handabök á við sandpappír er ég mikið fyrir góða handáburði. Crabtree & Eveln handáburðirnir eru ótrúlega góðir og svo mikið af gerðum! Þessi er í uppáhaldi því hann er með svo mildri og góðri lykt.



Elsku litli Chuck Bass USBinn minn. Keypti hann í Hagkaup bæði því hann var svo sætur og svo er hann líka 8GB, sem er nóg pláss til að raða inná hann Gossip Girl þáttum eða öðru nytsamlegu.



Urbanears! Keypti þau í Washington á ótrúlega góðu verði í Urban Outfitters. Yndælustu heyrnatól sem ég hef átt, svo mjúk og þæginleg og einangrar öll önnur hljóð. Svo er líka svona takki til að stoppa tónlistina eða svara í símann.

Karamellu frappó frá Te og Kaffi er búið að vera í uppáhaldi í svolítin tíma og ég fæ oft svona sætukaffidrykkjakreiv


Saturday, 3 May 2014

árshátíð


Ég fór á árshátið með þessu æðislega fólki ásamt mörgu öðru æðislegu fólki á fimtudaginn, þetta var algjört draumapartý!

Monday, 28 April 2014

krullur

Það virðist vera komið aftur í tísku að fá sér permanent núna. Við systurnar tókum því fagnandi og örkuðum báðar beint í permanent fyrir þónokkru síðan. Ætli það séu ekki komnir um tveir mánuðir núna. Hér að neðan má svo sjá mynd af því hvernig hárið á mér lítur út núna. Mér finnst það bara hafa haldið sér mjög vel. Hjá mér þ.e.a.s. en hjá Kötlu lak það úr eftir svona viku. Hún er með svo eindæmum heilbrigt hár hún Katla systir mín.
Allavega, ég ætlaði að deila með ykkur góðum ráðum og vörum í krulludeildinni ef að einhver ykkar er í sama pakka.




  1. Sjampó. Þetta er ekki eiginlegt krullusjampó en hárinu á mér líður svo vel af þessu að ég ákvað að vera ekkert að breyta til eftir að krullurnar komu. Það sem ég nota er einmitt þetta, Pure no. 01 en það eru til margar tegundir og ég held að barasta allar vörurnar frá Zenz séu súper góðar.  Þetta er allavega umhverfisvænt og náttúrulegt og fæst hjá Feimu Hárstofu.
  2. Hárnæring. Krulluhárnæring fyrir krullað hár, við keyptum svona brúsa eftir permanettið, er samt ekki alveg sannfærð um að það sé einhver munur á að nota krulluhárnæringu og venjulega hárnæringu, það er allavega góð lykt af henni! Þessi fæst í Hagkaup ásamt hinum John Frieda vörunum. 
  3. Hárolía. Mmmmm mig langar að búa í krukkunni það er svo sjúklega góð lykt af henni. Svo verður hárið svo mjúkt og fær svo fallega heilbrigðann glansa af þessu. Algert töframeðal. Hægt að kaupa þetta á mörgum hárgreiðslustofum. 
  4. Hárfroða. Þegar ég vil að krullurnar haldist extra vel smelli ég í þessari froðu í lófana og set í rakt hárið.
  5. Krullusprey. Þegar ég vil hafa krullurnar aðeins léttari en láta þær halda sér samt yfir daginn. Meira kasjúal svona. 
  6. Vatnsbrúsi. Snilld til að fríska uppá, þessar krullur elska vatn. Smá vatnsspraut og það bara lyftist. Þennan fékk ég nú bara í IKEA.




Á þessum myndum er ég tiltölulega nýbúin í sturtu, enn með rakt hárið og ekki búin að setja neitt í það nema olíuna góðu. Ágætis liðir bara eftir allan þennan tíma. 

Monday, 21 April 2014

páskasnilld


Páskarnir voru nú meiri snilldin! Við systur fórum vestur á Ísafjörð með fjölskyldunni. Hittum fjölskydu og vini og vandamenn og fullt af góðu og fallegu og skemmtilegu fólki. Borðuðum mikið af mjög góðum mat og sætindum og spiluðum nokkur spil. Svo var aðeins kíkt á Aldrei fór ég suður og nokkur páskaegg voru étin.
Þetta voru nú bara ljómandi fínir páskar. 

Sunday, 30 March 2014

Reykjavík Fashion Festival

Okkur systrum áskotnuðust á síðustu stundu miðar á Reykjavík Fashion Festival okkur til mikillar gleði. Hér eftir komu nokkrar myndir sem við tókum á símana okkar yfir daginn en við nenntum ómögulega að dröslast með stóru myndavélina. Látum myndirnar tala.





Farmers market var fyrsta sýning dagsins. Ég var mjög hrifin af sýningunni sem heild, hljóðfæraleikararnir og karlakórinn tónuðu mjög vel við fatnaðinn.


Katlan mætt á svæðið.


Zizka


Selfie milli sýninga.


magnea



Það var mikið um bið.


ELLA



Við vorum alveg á síðustu metrunum og fórum á kaffihús og fengum okkur hressingu á Le Bistro á Laugavegi. Misstum því miður þar af leiðandi af REY sem við hefðum nú alveg viljað sjá. Á myndum lítur sú lína allavega mjög vel út, það eru líklegast fötin sem við erum hrifnastar af. 


Laumast í loftinu. 


Lyftuselfie!



JÖR var með mjög flott show!






Í heildina var þetta alveg æðisleg upplifun. Við vorum báðar að fara í fyrsta skipti á RFF og það var mjög gaman að fá að prófa svona festival. Það eina sem setti svartan blett á daginn var þessi endalausa bið alltaf á milli sýninga og það að ekki ein einasta sýning byrjaði á auglýstum tíma. Þetta var rosa gaman en okkur þótti fullmikið að það hafi þurft að fara svona mikill tími í þetta allt saman.