Showing posts with label snyrtibuddan. Show all posts
Showing posts with label snyrtibuddan. Show all posts

Thursday, 22 May 2014

Fjórir dagsins



Ég keypti þennan kjól í Indiska um daginn. Ég varð svo hrifin af honum því hann er með svo flottu munstri og síður með svona smá klaufum neðst. (Og ótrúlega mjúkur:))


Buffing Brush frá Real techniques er í langmestu uppáhaldi hjá mér. Hann er mjög fjölhæfur, ég nota hann mest í púður og BB krem en svo er líka hægt að nota hann í bronzer og örugglega eitthvað fleira.


Ég er búin með fyrstu tvær og er að lesa Hermiskaða núna og hún er svo spennó!


Ótrúlega góður safi sem er ekki fullur af aukaefnum og drasli. Það er mjög gott að setja hann út í smoothie til að þynna eða bara drekka hann eintóman. Ég hef bara séð hann í Bónus og Hagkaup en  hann gæti verið á fleiri stöðum.


Thursday, 3 April 2014

eftirlætis

Okkur datt í hug að hafa sér flokk með eftirlætis hlutunum okkar. Þó að við séum mjög líkar að mörgu leiti þá getum við líka verið mjög ólíkar með það sem er í eftirlæti hjá okkur, hvort sem það séu föt, snyrtivörur eða aðrar nauðsynjavörur.
Við viljum þó byrja á einu sameiginlegu eftirlæti.

Eftirlætis varasalvinn okkar er Burt´s Bees tinted lip balm, í nánast hvaða lit sem er! Og þó, Rose og Red Dahlia eru líklegast í mestu eftirlæti hjá okkur. Við erum allavega alltaf með að minnsta kosti einn í vasanum eða veskinu hvert sem við förum.


Monday, 24 March 2014

DIY: VAXLITA VARALITUR



Mér fannst þetta svo mikil snilld þegar ég rakst á svona á internetvafri mínu að ég gat bara ekki trúað að þetta væri satt. Ég fór strax að leita um allt hús að vaxlitum en fann því miður enga. Ég fór beint að kaupa mér vaxliti því ég varð að prófa þetta.  Við studdumst við ÞESSA uppskrift og þetta er mjög auðvelt!

Það sem þarf í einn varalit:
1 Vaxlitur
1/2 tsk kókosolía, við notuðum lyktarlausa (rúmlega)
1/2 tsk ólívu olía eða önnur grænmetisolía (rúmlega)

Svo bræddi ég þetta í glerkrukku og hellti svo í ílát. Við komumst að því að það er þægilegast að nota gamalt varsalvahulstur til að setja þá í eins og t.d. þessi BurtsBees hulstur sem við notuðum. Þá er nefnilega einfaldast að setja varalitinn á. Það er svo sem ekkert mál í dollunum heldur ef maður á góðann varalitapensil. Þessar litlu dollur/krukkur eru úr Söstrene Grene.

Ég mæli með að prófa, litirnir eru rosalega fallegir. Þeir sitja vel á og eru mjúkir og góðir fyrir varirnar.


Mynd 1: google.com // Mynd 2: Katla